Sony Xperia X Performance - NFC

background image

NFC

Notaðu nándartengingu (NFC) til að deila gögnum með öðrum tækjum, eins og

myndskeiðum, myndum, vefslóðum, tónlistaskrám eða tengiliðum. Þú getur einnig notað

NFC til að skanna merki sem gefa þér fleiri upplýsingar um vöru eða þjónustu jafnt og

merkjum sem virkja vissa valkosti í tækinu þínu.
NFC er þráðlaus tækni með hámarkssviði sem er einn sentimetri, þannig að tækin sem

deila gögnum verða að vera nálægt hvort öðru. Áður en þú notar NFC þarftu fyrst að

kveikja á NFC eiginleikanum og það þarf að vera kveikt á tækinu þínu.
NFC-nemasvæðið er staðsett framan á tækinu. Haltu tækinu þínu nálægt öðru tæki eða

NFC-lesara þannig að NFC nemasvæðin snerti hvort annað.

Ekki er víst að NFC sé í boði í öllum löndum eða svæðum. Með því að nota viss forrit er hægt

að kveikja á ákveðnum NFC-valkostum, jafnvel þegar slökkt er á tækinu. Athugaðu að ekki öll

tæki styðja þennan eiginleika.

Kveikt eða slökkt á NFC eiginleikanum

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Meira.

3

Pikkaðu á sleðann

NFC.

Tengilið deilt með öðru tæki í gegnum NFC

1

Gættu þess að kveikt sé á NFC í báðum tækjunum og að báðir skjáirnir sé virkir og

ólæstir.

2

Til að skoða tengiliði ferðu í

Heimaskjár, pikkar á og pikkar svo á .

3

Pikkaðu á tengiliðinn sem þú vilt deila.

4

Haltu á tækinu þínu og móttökutækinu nálægt hvort öðru svo að NFC-

skynjunarsvæði tækjanna snertist. Þegar tækin tengjast birtist smámynd af

tengiliðnum.

5

Pikkaðu á smámyndina til að ræsa flutninginn.

6

Þegar flutningnum er lokið eru tengiliðaupplýsingarnar vistaðar í viðtökutækinu og

birtar á skjá þess.

115

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Tónlistarskrá deilt með öðru tæki með NFC

1

Gættu þess að kveikt sé á NFC í bæði tækinu þínu og viðtökutækinu og að kveikt

sé á báðum skjáum og þeir séu ólæstir.

2

Til að opna tónlistarforritið pikkarðu á , finnur svo og pikkar á .

3

Veldu tónlistarflokk og flettu að laginu sem þú vilt deila.

4

Pikkaðu á lagið til að spila það. Síðan getur þú pikkað á til að gera hlé á laginu.

Flutningurinn getur farið fram hvort sem lagið er í spilun eða ekki.

5

Gakktu úr skugga um að lagið birtist á heilskjá.

6

Haltu tækinu þínu og móttökutækinu nálægt hvort öðru svo að NFC-

skynjunarsvæði tækjanna snertist. Þegar tækin tengjast birtist smámynd af laginu.

7

Pikkaðu á smámyndina til að ræsa flutninginn.

8

Þegar flutningnum er lokið er tónlistarskráin vistuð í viðtökutækinu.

9

Til að birta tónlistarskrána tvípikkarðu á stöðustikuna til að opna tilkynningaskjáinn

og pikkar svo á

Geislun lokið.

Mynd eða myndskeiði deilt með öðru tæki með NFC

1

Gættu þess að kveikt sé á NFC í báðum tækjunum og að báðir skjáirnir sé virkir og

ólæstir.

2

Til að skoða myndir og myndskeið í tækinu þínu ferðu á

Heimaskjár, pikkar á

og finnur svo og pikkar á

Albúm.

3

Pikkaðu á þá mynd eða myndskeið sem þú vilt deila.

4

Haltu á tækinu þínu og móttökutækinu nálægt hvort öðru svo að NFC-

skynjunarsvæði tækjanna snertist. Þegar tækin tengjast birtist smámynd af

myndinni eða myndskeiðinu.

5

Pikkaðu á smámyndina til að ræsa flutninginn.

6

Þegar flutningnum er lokið er myndin eða myndskeiðið vistað í viðtökutækinu.

Veffangi deilt með öðru tæki með NFC

1

Gættu þess að kveikt sé á NFC í báðum tækjunum og að báðir skjáirnir sé virkir og

ólæstir.

2

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

3

Til að opna vafrann skaltu finna og pikka á .

4

Sæktu vefsíðuna sem þú vilt deila.

5

Haltu tækinu þínu og móttökutækinu nálægt hvort öðru svo að NFC-

skynjunarsvæði tækjanna snertist. Þegar tækin tengjast birtist smámynd af

vefsíðunni.

6

Pikkaðu á smámyndina til að ræsa flutninginn.

7

Þegar flutningi er lokið er vefsíðan birt á skjá móttökutækisins.

NFC-merki skönnuð

Tækið þitt getur skannað ýmsar tegundir NFC-merkja til að afla viðbótarupplýsinga, s.s.

vefslóðar. Til dæmis getur það skannað föst merki á veggspjöldum, á auglýsingaskiltum

eða við hliðina á vörum hjá smásala.

NFC-merki skannað

1

Tryggðu að kveikt sé á NFC-valkostinum í tækinu þínu og að skjárinn sé virkur og

ólæstur.

2

Settu tækið yfir merkið þannig að NFC-nemasvæðið snerti það. Tækið þitt skannar

merkið og birtir efnið sem það safnaði. Pikkaðu á efnið á merkinu til að opna það.

Tenging við NFC-samhæft tæki

Þú getur tengt tækið þitt við önnur NFC-samhæf tæki sem Sony framleiðir, eins og

hátalara eða heyrnartól. Kynntu þér notandahandbók samhæfða tækisins til að fá frekari

upplýsingar þegar þess konar tenging er stofnuð.